6.4.09

lífið er fullt af óvæntum uppákomum - röfl og raus

jamm - einmitt - klessti bílinn minn í gær - neibb ekki að grínast, bara alveg ein og sjálf - keyrðu á helv.... vegginn í bílakjallaranum - snillingur, það er ég, afturhurð og bretti í klessu, fer í skoðun á morgun og þá kemur meira í ljós

Í dag fórum við öll í klippingu og "greiðslu" og síðan til ljósmyndara í myndatöku, heppnaðist mjög vel með fermingardrenginn, og jú með lilluna líka en hún var svakalega spennt og upptrekt og tókst svona að taka alla athygli, svei mér þá ef ekki voru bara teknar fleiri myndir af henni en fermingarbarninu og síðan voru fjölskyldumyndirnar svolítið uppstilltar en vonandi leynist ein nothæf - amk er ég eitthvað alveg búin á því eftir þennan dag, ekki beint frí ef þið skiljið hvað ég á við.
Morgundagurinn fer í þetta bílavesen og síðan verð ég að fara á fund í vinnunni, hefði eflaust verið best að vera bara í vinnunni en ég ætla samt að reyna að hanga á því að vera í "fríi"

Fórum sl laugardag í göngu á Botnsúlur, 19,3 km, rúmlega 800metra hækkun og tæpir 7 klst. Unglingurinn tók eiginlega þá ákvörðun eftir þann dag að láta Hnjúkinn bíða betri tíma og öðlast meiri andlegan styrk því svona göngur taka mikið á, í snjó og byl og sumir í hópnum leggja mikla áherslu á að hraða sér niður, og leggja lítið upp úr að njóta - hvort sem er útiverunnar, félagsskapsins eða bara augnabliksins og það er eitthvað sem við leggjum svo mikla áherslu og því fannst honum þarna í lokinn þetta já bara eiginlega "leiðinlegt" sem er frekar mikil synd því honum hefur alltaf þótt svo gaman að koma með, ég þarf eitthvað að byggja hann upp aftur en núna fær hann bara að hvíla, sjálf þarf ég að byggja mig upp því þetta var smá áfall að upplifa, ekkert mál líkamlega en andlega erfitt - kannski auka álag að hafa hann og þurfa að peppa áfram

æji þetta var röflið mitt í dag .... oft gott að losa svona um bara út í bláinn

2 comments:

Inga Lara said...

hvilikt bilavesen er a ther kona, klessa hann og nybuin ad thurfa ad lata skipta um kerti...

ofurmamma said...

Þú ert hörkutól, dauðöfunda þig af dugnaðinum. Þú tekur Hnjúkinn í nefið, efast ekki um það. Er viss um að myndirnar eru æði, enda flott fjölskylda á ferð.
Klappaðu bílnum frá mér ;)
kv.