áramótaheitið - prófa að blogga - spurning hvert það leiðir mann, gaman að koma pælingum og hugsunum niður án þess að safna dagbókum í kassa - helst að bloggið hennar Lóu hafi hvatt mig til dáða þó ég muni ekki reyna að komast með tærnar þar sem hún hefur hælana enda kona umvafin bráðfyndnu fólki og er skemmtilegur penni. En afhverju blogga - jú eins og margir hafa sagt - þetta er bara skemmtilegt og líka þegar maður á marga vini og ættingja sem eru langt frá þá er gaman að geta leyft þeim að fylgjast með - en svo er þetta líka ein leið til að fá útrás - sjáum hvað setur og hvert þetta fer. Annars erum við fjölskyldan ný komin heim frá Landsmóti skáta sem var alveg ótrúlega skemmtilegt - Mosverjar fjölmennuðu og voru með fjölmennasta hópinn í fjölskyldubúðunum eða yfir 100 manns - ekki slæmt, krakkarnir í tjaldbúðunum voru um 50 og því fór þessi 150 manna hópur ekki framhjá neinum - held ég.
Á morgun leggjum við í'ann á hjólum yfir á Apavatn og þar ætlum við að hvíla okkur þar til átökin byrja aftur á þriðjudag - þe ég í vinnu og sonurinn að undirbúa að komast á mótið að Laugum. Tíminn líður allt of hratt bara 3 vikur í að skóli byrji að nýju og þá fer unglingurinn í unglingadeild og lillan í fyrsta sinn í skóla - það verður nú eitthvað til að fylgjast með
31.7.08
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment