4.8.08

og svo kemur annað vers

Jæja þá er þessi verslunarmannahelgi að baki og furðulegt nokk ekki mikið um hrillingssögur af slysum, fylleríum eða öðru sem svo skemmir álit mitt á mannfólkinu - en við mæðgnin sem sagt hjóluðum á föstudaginn frá þjónustumiðstöðinni á Þingvöllum yfir á Apavatn eða 30km og var mikill mótvindur og traffíkin var mun meiri en ég átti von á - og ekki voru menn að slá af - á köflum þar sem hámarkshraði var 40 eða 60 voru menn að keyra fram hjá okkur án þess að beygja frá á um 100 km hraða ekkert smá erfitt - en við komumst alla leið og vorum mjög ánægð með okkur, hvíldum okkur í pottinum, lásum og spiluðum með lillunni og stórfjölskyldunni. Unglingurinn hafði það á orði að þessi hjólaferð og gangan yfir Fimmvörðuháls væru eitthvað sem ekki myndi gleymast, minning sem myndi lifa með okkur og að við yrðum að passa að gera eitthvað svona eftirminnilegt á hverju ári. Í kjölfarið voru undanfarin ár rifjuð upp og hvað var gert sem situr eftir og ljóst að það sem situr best er samveran og einfaldleikinn ;0)
Í gær sunnudag gerðumst við túristar í eigin landi og fórum að sjá Gullfoss og Geysi og var lillan hissa á öllu þessu útlenska fólki sem var þarna komið til að skoða fegurð Íslands og spunnust umræður um hver ætti landið okkar og sögu Sigríðar sem barðist fyrir því að Gullfoss yrði ekki seldur útlendingum og hverju það hefði getað breytt.
En núna tekur alvaran við - ekki langt frí 10 vinnudagar eða 2 vikur og segja má að mamman sé þreyttari núna en fyrir tveimur vikum en það er bara líkamleg þreyta - innri gleðin er mikil og hamingjusöm með mitt leggst ég á koddann.

No comments: