Mikið um hana rætt og ég segi bara - ég er fædd undir heillastjörnu!
Eitthvað varð til þess að ég skipti um vinnu og þal hærri laun, nær heimilinu og þal minni bensínkostnaður, skipti um stéttarfélag og það samdi og launin hækkuðu - möo alveg status co hjá mér þannig lagað þe ég hef haldið í við hækkarnir.
fór í Kringluna í dag og mér blöskraði verðið á barnafötum - ein hettupeysa á 5 ára sexþúsund krónur, já mér finnst það mikið. En við versluðum skólaföt sem lillan valdi sjálf og ég verð að segja að hún er smekk kona og svo skruppum í smá dinner mægðurnar - voða næs. Ætlum að eiga góða helgi heima við svo tvær ....
En þetta er nú meira endemis hringavitleysan í borgarmálunum - ja hérna hér - fegin er ég að búa ekki þar eða þurfa að vinna í návígi við slík örskipti í brúnni. Mikið svakalega vorkenni ég þessu fólki - eins og HB sem er eins og stengjabrúa í draumaveröld um að verða eitthvað - finnst þetta allt AFAR klént - en þetta kusu borgarbúar yfir sig og ég segi bara að betra er þá að skila auðu!
15.8.08
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment