11.8.08

Harðsperrur og hnéeymsl

úff erfiður dagur - ekkert fann ég fyrir Fimmvörðuháls né hjólaferðinni en Esjan .... geng um eins og 100 ára gamalmenni, vantar bara göngugrindina en ég held að skýringin sé frekar að okkur varð kalt í þessum dembum sem við lentum í og vegna lillunar þá var stoppað oftar og þá kólnaði maður niður - en ég vona að þetta gangi hratt yfir.
Lillan fór á leikjanámskeið í morgun og fannst frábært en svona leikjanámskeið kallar á að maður þarf að vakna fyrir allar aldir og nesta út.... og ótrúlegt hvað maður getur verið hugmyndalaus. Unglingurinn fór líka á námskeið, hreystinámskeið, skemmtileg tilbreyting fyrir hann og fjölbreyttar æfingar sem munu gera honum gott svo lengi sem hann slasar sig ekki , hann er jú að keppa á Íslandsmeistaramótinu um næstu helgi. Að lokinni 2 klst hreystiæfingu fá krakkarnir boozt og ávexti og svo nær hann að hvíla sig í 3 tíma áður en hans æfingar hefjast - úff þokkalegt álag að æfa 4 tíma á dag.
En þau eru voða sæl og glöð og í góðu jafnvægi, lillan hlakkar til að byrja í skóla, unglingurinn getur ekki trúað því að sumarið sé búið, finnst það hafa liðið alltof hratt. Framundan er fermingaundirbúningur ... já margt að gerast á litlu heimili, lífið að detta inn í hversdagsleikan og rútínuna og það er bara gott.

No comments: