22.8.08

Allt að gerast

Já sko ekki að spyrja að hanbolta strákunum - mikið hrikalega eru þeir flottir, þeir eru sko að fara alla leið!!
Þetta er búin að vera busy week, vorum á vinnufundi í Hveragerði og jább jörðin skalf, reyndar bara 3 á richter en beint undir okkur - eins og hvellur, ég var einmitt í Stykkishólmi þegar stóri skjáftinn varð, já og á Egilsstöðum þegar óveðrið skall á hér 13.des 07 og já á Kanaríeyjum þegar flóðbylgjan kom, möo ég ætti að halda mig heima hehe.
Unglingurinn hefur farið á kostum þessa vikuna, tók sig til og hjólaði maraþon á mánudag eða 42 km, synti 1500 m á miðvikudag og hleypur 10km á morgun í Glitnis hlaupinu, held að þessir olympíuleikar og viðtöl við unga menn sem eru að gera góða hluti séu að hleypa einhverju svona hugsun, ef mann langar eitthvað þá getur maður ef hugurinn er einbeittur, verst fyrir hann að íslenskt veðurfar er oft ekki að hjálpa til en segi eins og handboltahetjan númer 1 Bíb Bíb Bíb, bara vera jákvæður, er á meðan er, :0)
Annars er skólinn byrjaður og unglingurinn lenti í strákabekk allir kennarar nýjir, þetta verður skemmtilegt að fylgjast með. Lillan hins vegar lenti í bekk þar sem engin stelpa af hennar leikskóla er í (nb þær voru jú bara 4 en hinar 3 eru allar saman) OG engin stelpa í bekknum býr í nærliggjandi götum - ég á eflaust eitthvað eftir að þurfa að róa hana hvað þetta varðar en ég óttast að hún verði ein á báti þar sem hinar virðast vera tvær og tvær og þær eru alls 9 - þarf að nefna þetta við kennaran ekki gott að byrja svoleiðis eða hvað? Æji manni er alltaf svo annt um þessi kríli og að þeim líði vel, og sérstaklega svona mömmur eins og ég er hehe

No comments: