8.8.08

Að ávarpa fólk

Ég var að hugsa um daginn hvernig fólk ávarpar hvert annað - og þá sérstaklega vinnutengd ávörp, segir maður Sæll/sæl og nafn viðkomandi, segir maður bara góðan dag ... ?
Sama hvað maður segir þá er ég þeirrar skoðunnar eftir nýfengna reynslu að það er ein leið sem maður bara gerir ekki -
þannig var að ég þurfti fyrir hönd vinnunnar, sem er eins og þeir sem mig þekkja opinber stofnun að leita hugmynda að verki til fagaðila út í bæ og ég sendi bréf þar sem ég óskaði eftir að fá ja ekki tilboð á þessu stigi heldur meira spjall og svona þankahríð sem ég vænti að myndi leiða til tilboðs frá þeim og að lokum samnings en svarið sem ég fékk byrjaði svona:

"Sæl M..... mín"

Hver segir mín við manneskju sem hann/hún þekkir ekki, hefur aldrei séð og ert þar að auki að svara opinberri stofnun? Ykkur að segja - viðkomandi er þekkt nafn í íslensku þjóðfélagi að þal veit ég aldur einstaklingsins og hann er mun lægri en minn og það var ekki til að bæta það - en já viðkomandi skaut sig (og fyrirtækið sem viðkomandi starfar hjá) algerlega í fótinn og ekkert varð meira úr þessum samskiptum og tæplega 3 milljóna samningur fór annað ... leiðinlegt fyrir þau en "krakkar mínir" svona er lífið ..... og kreppan

1 comment:

Anonymous said...

Vá hvað ég er sammála þér. Það er eins og það sé verið að tala niður til manns.