29.8.08

Ég elska haustið

og líka vorið já og sumarið og veturinn - allar árstíðir hafa sinn sjarma, vildi ekki búa í landi þar sem veður er alltaf keimlíkt. En haustið hefur þessa ró þar sem ég byrja aftur að kveikja á kertum, rútínan að fara í gang hjá krökkunum, ég sef betur af því að það er dimmt og já svo elska ég haustliti.
Þessa helgi er bæjarhátíðin í Mosó og ég er í gula hverfinu - á ekki mikið gult til að skreyta en veðrið leyfir nú heldur ekki að setja mikið upp en sumir eru afar bjartir og eru með allt út um allt í sínum lit voða gaman. Fór í matarboð í gærkvöldi sem var verulega notalegt en líka afar sérstakt, fengum frábæran mat og eðal félagsskapur.
Lillan vill ekki að ég gangi með sér í skólann og ekki heldur má ég sækja hana... hún er á "ég sjálf" tímabili númer 2 eða var það númer 3? Hún skilur ekkert í því afhverju hún þarf ekkert að læra heima og svo finnst henni skrítið að þau eru alltaf að leika sér.... alveg dæmigerð byrjun á 6 ára bekk = vonbrigði, ætlar skólinn aldrei að fatta það að hamra járnið og leyfa þeim bara að byrja geta síðan slakað ferkar um mitt skólaár þegar þreytan og myrkrið er allsráðandi.
Unglingurinn hefur hins vegar setið sveittur, verið í skólanum alveg fram undir 4 - rétt náð heim fyrir æfingar, komið heim um hálf átta og þá borðað og svo sest við að læra og alveg fram til klukkan 11 á kvöldin - ég er ekki alveg að skilja þetta, var að ræða við hann hvort hann inni svona hægt í tímum og ætti þal mikið eftir en nei þetta er heimavinnan. það er eins og allir kennararnir ætli að sýna þeim hvar Davíð keypti ölið og að það sé ekkert hangs að vera kominn í unglingadeild en ég held að þeir séu ekki alveg að fara rétt að þessu en sjáum hvað setur - hann er búinn að fara í eitt stöðupróf og fékk 9,2 í því og hann er að njóta þess verulega að fá nýja kennara og fá að takast á við eitthvað ögrandi. Hann er yndislegur við systur sína og sýnir henni mikla athygli og alúð varðandi hennar upplifun - þau eru svo krúttlega saman. vá er maður stolt mamma eða hvað ....
Koben eftir 5 daga! kærkomin viðbót við alltof stutt sumarfrí ;0)

No comments: