10.8.08

Góð helgi

já þetta var góð helgi .... náði að hvíla mig vel á föstudagskvöldið fyrir framan imban en á laugardaginn fórum við vinkonurnar snemma af stað í strætó til að líta gleðigönguna augum - frekar fyndið - strætó var kjaftfullur og allt unglingar - nema við og enginn stóð upp fyrir okkur"gömlu" konunum mér hefði nú fundið það smart ef einhver hefði gert það - en ó nei - einn gaurinn ca 14 ára meira að segja tók 2 sæti - annað fyrir lappirnar á sér og svaf! oh well... en þetta var hinn fínasti dagur - mikið hlegið og bara teknar skyndiákvarðanir og einn þeirra var að sjá myndina mamma mia og vá hvað ég hló - þetta er bara fyndin mynd - hressileg skemmtun. Í dag var ég hins vegar vöknuð fyrir allar aldir og eftir kaffi og blöðin og sólbað og 2 þvottavélar stakk ég upp á því að unglingurinn og lillan kæmu bara aðeins fyrr heim úr pabbahelgi og að við myndum öll 4 þramma á Esjuna og það var gert. Fengum log, skýjað, sól, rigningu, rok og regnboga en þetta hafðist, meira að segja lillan og sá lofthræddi (pabbinn) komust alla leið upp og já niður aftur en ekki laust við að þetta hafi nú samt verið smá puð en skemmtilegt ;0)

1 comment:

Anonymous said...

Til hamingju með árangurinn ;)