jæja þá rann hann upp - fyrsti skóladagurinn og sorgin mikil að ekki væri laus tönn en spennan náði yfirhöndinni og á leið í skólan vildi sú stutta ekki einu sinni leiða mömmuna sína eða eins og hún svarði "ég vil alveg leiða þig en mig langar að vera alvöru skólastelpa"! það lá við að ég spyrði hvort hún vildi að ég gengi 10 skrefum fyrir aftan - en inn fór hún glöð gekk upp í stofuna og þar voru borð þar sem 4 gátu setið saman og komnar voru 4 stelpur á tvö borð - stelpur sem hún reyndar þekkir ekki eða amk mjög lítið og þar sem hún er þar að auki níunda stelpan í hópnum sat hún hjá strákunum - ekki virtist það nú fá á hana þó að mamman sæi að hún horfði á þær - smá sorgarblik - en svo kom ... ættarsvipurinn ÞRJÓSKAN!!
Hún alveg rúllaði þessu upp svo mikið að í matartíma fór einn að gráta af því að hann fékk ekki að sitja hjá henni heldur "kærastinn" til þriggja ára! í fyrsta tíma fór kennarinn í smá stærðfræði - hvað eru 0+1 og allir réttu upp hönd en 2+2 og enn réttu margir upp hönd en 100+100 og þá sagði mín - ég var sú eina sem rétti upp hönd! 200 en ekki hvað - ok sagði ég en veistu það af því að þú ert búin að læra það utan bókar eða skilur þú hvað þú ert að leggja saman - já - 1+1 eru 2 og þá eru 100+100 = 200 af því að maður hugsar bara 1+1 og bætir svo núllum við .......... spurning hvort ég eigi ekki bara að flytja hana upp um bekk ;0) en svo var hún rokin að leika og þá hugsaði ég - nei leyfum börnum að vera börn ... og njóta hvers dags, hvers stigs og hvers spors fyrir sig á sinn hátt.
26.8.08
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Hún er æðisleg - verður greinilega stærðfræði séní eins og mamman og stóri bróðir :o)
Kv. Lóa
Post a Comment