17.8.08
Einfaldleiki
Ég aðhyllist einfaldleika og þessi helgi er dæmi um það - ekkert smá næs að vera bara heima með lilluna - hlusta á hana leika sér, púsla með henni og lita, syngja með barnalögum, baka handa henni vöflur og hita kakó - þrífa smá og bara njóta einfaldleika lífsins. Svona helgar gera lífið fullkomið. Jæja unglingurinn búinn að keppa og 2.sætið var það að þessu sinni sem er bara glæsileg ef tekið er mið af meiðslum og því að ferðast langt og sofa á dýnu. Fyrsta sinn sem ég horfi ekki á hann keppa, herðir hann að takast á við þetta einn. Nú þurfa þeir að keyra alla leið heim - verða komnir seint í kvöld. more later
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Til hamingju með árangurinn - 2. sæti á Íslandsmeistaramóti er góður árangur. Ég er svo sammála þér með einfaldleikan, það er svo ljúft að slappa af og leika sér í rólegheitum.
Kv. Lóa
takk fyrir það - hann sem handhafi að innanhús íslandsmeistara-titlinum frá í vetur setti sér markið hátt en var svo meiddur - þannig að hann var sko sáttur við sitt ;0)
Post a Comment