14.8.08

Mávurinn stal nestinu

já þessi vika er búin að vera busy en skemmtileg!
Lillan fór á leikjarnámskeið sem stendur yfir alveg þar til skólinn byrjar og þar hefur hún upplifað margt skemmtilegt - ma smíða kofa og þá kom mávur sem stal nestinu hennar - þvílíkur dónaskapur! Í dag veiddi hún síli sem núna er kominn í skál og skreytir heimilið. Mikið fjör þarna á ferð greinilega og ánægjan og brosið leynir sér ekki.
Unglingurinn fór á hreystinámskeið og er að prófa ýmislegt þar, hefur þó farið varlega þar sem hann er með að því að talið er vaxtaverki í vöðvafestingum í mjöðminni en því fylgir mikill sársauki - gæti líka verið tognun eða ??? enginn getur sagt með vissu - okkur finnst þetta þó vera að skána. Vonandi því Íslandsmeistaramótið í frjálsum utanhúss fer fram um helgina að Laugum í Þingeyjarsýslu - engin smá keyrsla fyrir þá stráka en þeir ætla að skella sér - svo við sem heima sitjum verðum að krossleggja fingur og vona að tröllið geti hlaupið.

Í gær fór ég með tveimur eðal konum í 10km göngu og ég verð að segja að svona útivera í góðu veðri, fallegri náttúru, glaðlegum, frábærum félagsskap er örugglega á við 3 gleðipillur - ekkert smá sem mér líður vel eftir svona kvöldstund.
og þar sem ég elska fleyg orð og spakmæli þá kemur hér eitt:

Langi þig til að gefa einhverjum góða gjöf, veittu þeim athygli og brot af tíma þínum.

1 comment:

Anonymous said...

Frábær gönguferð í frábærum félagsskap ;-)