6.8.08

Valkvíði?

Hvað er valkvíði? haha nú hlægja þeir sem mig þekkja því það er eitthvað sem ég þjáist af en ég er alltaf að verða betri og betri í að þjálfa mig í að láta valkvíða ekki stjórna mér - taka bara ákvörðun og láta slag standa - en ég er ein af þeim sem þjáist af valkvíða eða það held ég - ég ætti kannski að spyrja einhvern álits?
Mér datt í hug að kannski væri til sjálfshjálparbækur um þetta efni. Þannig að ég fór í bókabúð og leitaði að bók um sjálfshjálp fyrir fólk með valkvíða. Hey, frábært, hugsaði ég þegar ég sá einmitt bók sem fjallaði um þetta erfiða viðfangsefni “Valkvíði - Hvað er til ráða?”, alveg þangað til ég til ég rak augun í bókina “101 leið til að sigrast á valkvíða”. Þá var ég komin í vandræði! Hverjum dettur í hug að selja tvær bækur um sjálfhjálp fyrir fólk með valkvíða í sömu versluninni?

No comments: