Þá er þessi sunnudagur að kveldi kominn. Í stað þess að segja frá hvernig helgin var langar mig að blogga um eitt af áhugamálum mínum en það er þakklæti.
Það er mikill kraftur sem fylgir því að vera þakklátur að mínu mati og legg ég mig fram við að þakka daglega fyrir allt það yndislega sem líf mitt hefur uppá að bjóða
Þakklæti er hugtak sem ekki er mikið rætt meðal Íslendinga. Við þjösnum okkur í gegnum dagana með dugnaðinn og eljuna að vopni og finnst nánast sjálfgefið að hlutirnir gangi vel. Við oftar en ekki tvinnum saman blótsyrðunum þegar þeir ganga ekki sem skyldi en finnum kannski ekki til sömu þarfar til að þakka fyrir það þegar þeir ganga upp.
Að temja sér þakklæti í samskiptum og sem viðhorf til lífsins getur breytt miklu fyrir hvern og einn og segja má að þakklæti sé vannýttur kraftur meðal okkar Íslendinga. Í hraða nútímasamfélagsins gefum við okkur ekki alltaf tíma til staldra við og þakka fyrir góða hluti en um leið missum við af mikilvægri upplifun sem getur verið allt í senn, vegvísir í lífinu, leið til betri og árangursríkari samskipta og jákvæðari afstöðu í lífinu.
Ég lærði þakklæti "the hard way" og hef sett það að markmiði mínu að vera fyrirmynd barna minna í þakkæti og með því vona ég að ég nái að setja þakklæti inn í þeirra daglega hugsunarhátt. Ég á örugglega oft eftir að tala um þakklæti í bloggi mínu sem og um hin ýmsu hugarefni mín. gott finnst mér að vitna til bóka eða spakmæla sem ég hef rekist á í gegnum tíðina - og hér er ein tilvitnun úr "Munkurinn sem seldi sportbílinn sinn"
“Vinur minn, ég hef líka gengið þennan veg. Ég hef líka fundið til þess sársauka sem þú lýsir. Samt hef ég komist að því að allt sem gerist hefur tilgang. Ég hef uppgvötvað að öll mistök, persónuleg, í vinnu og jafnvel andleg, eru nauðsynleg fyrir persónulegan þroska. Þau hvetja til vaxtar hið innra og verða að andlegri umbun. Þú skalt aldrei iðrast vegna fortíðarinnar. Taktu henni frekar opnum örmum eins og þeim kennara sem hún er.”
Munkurinn bls: 25
24.8.08
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment