28.11.08

Litla klikkaða vikan

gvvvuuuð hvað ég er fegin að hún er búin - að koma heim upp úr kl 19 dag eftir dag er ekki alveg að gera sig þegar maður er einstæður - en annars er maður bara góður hvað er annað hægt?
Heyrði af vin sem var sagt upp í dag og eitthvað er hljóðið svartara á mínum vinnustað en fyrir 2 vikum ...... sjáum hvað setur
Síðasta helgi var bara íþróttakeppni út í eitt - báðir krakkarnir að keppa í frjálsum á laugardegi, toppaði fyrri ár og var þar frá 08:30 -18 og var að verða klikkuð - krakkarnir stóðu sig vel, unglingurinn ekki á verðlaunapalli en bæting á tíma og gleði - markmiðið er alltaf að keppa við sjálfan sig líka og gera betur og það tókst. Lillan var að keppa í fyrsta sinn og sló í gegn (hjá mömmu og bróa) var 3ja í sínum árgangi í 60m og 400m þó að heildarniðurstaða hafi verði 25 sætið af 90 í annarri greinninni og 36 sæti af 100 í hinni en var að keppa við krakka fædd 2000 og 2001 en hún er okt 2002 þannig að þarna er enn einn efnilegur hlaupari í fjölskyldunni á ferðinni - síðan var hún á fótboltamóti á sunnudegi og var skemmtileg þar - sló í gegn með kátínu og gleði ;0)
Skaust á skemmtilegt djamm á laugardeginum með skátunum - Ríó Tríó og Ladda þema og vá hvað ég skemmti mér ;0)
Annars eru bara jólin og það á skella sér í gjafakaup á morgun og setja upp seríur og svona - bara skemmtilegt - best að gleyma sl 2 mánuðum og bara njóta þess að vera til í 2 daga.
jólakortin ......... nenni ég að föndra þau þetta árið .................... neeeeeeeeeeeeeei

No comments: