Stundum langar mig hvorki að deila hugsunum né lífi en stundum fæ ég svona þörf. Þessa dagana hefur ekki verið mikið um þörf - hef bara hreinskilningslega verið ótrúlega þreytt og orkulaus og hitatoppar byrjaðir aftur - þoli þá ekki - var svoleiðis í fyrra, allan veturinn kom heim með ca 39 stiga hita og verki út um allt og vildi bara sofa en svo náði ég einhverju jafnvægi í kroppinn og þeir hurfu en núna eru þeir komnir aftur - læknirinn segir þetta síþreytu - jamm ok kannski það sé málið en ég er ekki að nenna neinum slíkum nútíma velmegunar sjúkdómi - annað hvort alvöru eða sleppa því HAHA þannig að hafi ég verið þrjósk þá er ég þrjóskari nú more than ever .......... annars er ryksugan ónýt - uppþvottavélin biluð - bílinn bilaði aftur (bara 22 þús + hin 80 þús um daginn) og já ein vél litaðist í þvottavélinni minni - EN það er bara smámunir ;0) því gleðin út andiliti unglingsins var svo gefandi eftir félagasútileigu þegar hann kom heim og sagði "þetta var bara snilld" !! útleiga með skátunum, sundlaugapartý, sig og klifur, einfaldur heimilismatur súpur og kjötbolllur, söngur og gleði og það þarf ekki meir - allt annað fellur í sandkorn smáatriða.
Horfði á Happy Feet með lillunni og gleðin skilaði sér í að hún vaknaði á sunnudagsmorgun og vakti mig 07:30 klædd í Línu búninginn með hárkolluna og allt og var Lína ALLAN daginn .......
Horfðu í augu barnsins og þú finnur gleðina innra með þér!
11.11.08
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
eg hefdi haldid ad hun vaeri vaxin upp ur Linu buningnum?
Ja, bilud heimilistaeki eru smamunir i samanburdi vid ad eiga good friends and family
knus fra London
Mikið skil ég þig vel með þreytuna - og að vilja bara alvöru eða sleppa því - ekkert hálfkák!
Gott að gleðjast yfir því smáa - sem er í raun ekki svo smátt.
kv. Lóa
Post a Comment