20.12.08

Ekta við....

Það bregst varla að ef veikindi herja hér á bæ þá er það um helgi eða í einhverjum fríum -
Lillan byrjaði jólafríið með stæl - smá hitaveila og hálsbólga er herti sig upp og fór á jólaballið í gær en svo um 2 í nótt rétt eftir að ég hafði náð að festa svefn kom hún upp í og gusaði yfir allt rúmið mitt - náttborðið (ofan í skúffu líka - hún var nefnilega ekki alveg lokuð) og yfir sjálfa sig - inn á bað og þar fór önnur gusa og svona gekk þetta með ca 30 mín fresti þar til núna hefur hún ekki ælt í klst. plús niðurgangur sl 3 tímana eða svo. Mjöggggggg skemmtilegt !
Gelgjan er aftur að leysa af við að bera út - í þetta sinn í sinni gömlu götu og tveimur öðrum og annan daginn í röð var mikil seinkun á blöðum en greyið haltrar þetta (jamm tókst að meiða sig á æfingu - aftur) því ekki get ég skilið lilluna eftir en hann kvartar ekkert. Eftir útburð sá hann að við vorum enn vakandi þannig að hér var bara ákveðið að vera ekkert að leggja sig - fara frekar fyrr í háttinn í kvöld enda vakt hjá honum í skógræktinni í fyrramálið.
jólastússið á þessum bæ er afar rólegt - það var planið að fara að skoða jólaljós og kíkja á kaffihús með þeim í dag en spurning hvað verður úr því - sjáum til upp úr hádegi. Amk verð ég að fara að ljúka nokkrum erindum og þá verður bara hóað í ömmu að passa - já þetta er svona laugardagsmorgunsrauseftirerfiðaandvökunótt

2 comments:

Anonymous said...

Æji, er þetta ekki týpískt, fá bara gubbuna rétt fyrir jól. Vona að heilsan á heimilinu sé eitthvað skárri og allir geti notið þessara síðustu daga fyrir jól.

jólaknús
Kolla

Inga Lara said...

kannast vid veikindi. Eg fekk svaka flensu viku fyrir Jol med miklum hosta og svaka hita (vaknadi oft a nottinni til ad skipta um rumfot). drattadist loks til laeknis a Thorlak og var komin med sykingu i lungun og er buin ad vera a sterkum pensara sidan. fer i lungnamyndatoku a fostudaginn.... er enntha leleg svo reikna med odrum pensara skamti i eftir helgi....