eins mikið og ég þoli ekki gamlárskvöld með þessum sprengingum og ímyndaðri kátínu og látum - þá elska ég tímamót - svona opinbert break á milli tímabila - mér finnst að fólk eigi þetta kvöld að hafa hægt um sig heima í litlum hópi og íhuga, hugsa, setja sér markmið og skrásetja frá hinu smæsta til hins stærsta sem það vill ná áorkað á komandi ári.
Endurminningar þínar í lok ársins sem er að líða eru besti undirbúningurinn undir næsta ár.
Nýtt ár er eins og óskrifuð bók, skrifum í hana það sem í lok ársins minnir okkur á gleði í stað eftirsjár.
Innlegg inn í árið 2009!
Ef þú getur ekki farið í gegnum fjallið skaltu fara umhverfist það. Ef þú getur ekki farið í kringum fjallið skaltu klífa það. Ef þú getur ekki klifið það - sestu þá niður og hugleiddu hvort það borgi sig að skoða það sem er hinum megin. Ef svo er byrjaðu að grafa göng.
Kærleikur til ykkar allra og þakklæti fyrir ykkar þátt í minningunum
31.12.08
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
Hlakka til að hittast á nýju ári og það sem oftast. Sammála þér að gott er að nota áramótin og hugsa um hvert maður stefnir og hvað maður hefur áorkað. Verð samt að viðurkenna að ég hef gaman af flugeldum og látum á gamlárskvöld :o)
kv. Lóa
Alveg sammála mér finnst á gamlárskvöld og oftar þessu ímynduðu látalæti ferlega leiðinleg en á þessum tímapunkti fyllist ég oft eftirsjá yfir því sem aldrei kemur aftur.
Gleðilegt ár og takk fyrir það gamla. Sammála Lóu um flugeldana, algjörlega ómissandi....
Ágætt að fá svona smá hugleiðingu um tímamót og fjall.... passar vel við okkur ;)
Fæ kannski að stela þessu frá þér hehehe...
Hittumst sem oftast á nýju ári
kv.
K
Post a Comment