7.1.09
Unglingurinn 14 ára í dag - TIL HAMINGJU!
já liðin 14 ára síðan "litla" barnið kom í heiminn - hafði látið bíða eftir sér í 14 daga - átti að fæðast á aðfangadag en kom ekki fyrr en þann 7.jan eftir 7 daga hríðir sem aldrei duttu niður - já þessi lét sko hafa fyrir sér en síðan þá verið að mestu hugljúfi móður sinnar - það skellur í svona gelgju af og til en ekkert til að tala um - Unglingurinn er að breytast í fullorðinn mann og hann er alls ekki allra - sumir bara ná honum ekki en eldra fólk laðast mjög að honum enda afar þenkjandi nenni maður að setjast niður og gefa honum tíma og tækifæri til að opna sig og kynnast sér - hann fylgist mjög vel með þjóðmálum og hefur áhuga á fréttatímum svo mikið að ég stundum ruglast á honum og föður hans - já hann kippir í kynið - annars sitja þeir 6 saman inn í herbergi í einhverjum leik - búnir að gúffa í sig 4 stk af 18" pizzum og gulrótarköku og eru á leið í bíó kl 20 - bara gaman að vera unglingur í dag held ég.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
Til hamingju með "stóra strákinn" þinn elsku Madda.
Hann er frábær og það er búið að vera gaman að fylgjast með honum stækka og þroskast. Og ég hlakka til að fylgjast áfram með honum, og að sjálfsögðu litlu skottunni líka ;o)
Sidbuin kvedja fra London.
Eg man natturulega alltaf eftir thessu afmaeli thad er ju annar madur sem eg thekkti vel sem a afmaeli thennan dag.
Tilhamingju med drenginn, hann er ju ljufur og godur drengur
Post a Comment