18.1.09

afrek helgarinnar

jamm - þessi helgi búin og sú gamla mun þreyttari en á föstudag :0) en svona eru bara sumar helgar. Þessi byrjaði 07 á laugardag við að gera allt klárt, nesta út og leggja í hann og við tók 10 tíma vera í frjálsíþróttahöllinni - þar kom sú stutta aftur á óvart og stóð sig hreint út sagt frábærlega - keppnisskap mikið og árangur eftir því, varð ma nr 4 af rúmlega 50 stelpum í 400 metrunum og efst af árgangi 2002 (var að keppa við eldri stelpur) og tíminn hennar (hún rétt rúmlega 6 ára) var betri en bróður hennar þegar hann keppti fyrst í 400 tæplega 8 ára ! verður gaman að fylgjast með þeirri þróun ef hún heldur áfram. Unglingurinn kom foreldrum á óvart og keppti í stangarstökki og varð þriðji og síðan fékk hann 3ja sætið í 800 metum -munaði 0,00.eitthvað á 2 og 3ja sætinu :0/EN bætti tímann sinn enn og aftur - kominn í 2:20 - mikil gleði ;0) Síðan var aftur mætt í morgun og keppni haldið áfram en síðan brunað í Mosó þar sem verið var að verðlauna íþróttafólk í Mos fyrir gott gengi á árinu 2008 og þar fékk unglingurinn viðurkenningargrip úr gleri - voða fínt hilluskraut og skemmtilegt (fyrir íslandsmeistaratitil í 800 en þá var tími hans 2:26.xx eitthvað þannig að bæting á rúmum 8 mán er 6 sek sem er mjög flott - núna sit ég alveg punkteruð og já eiginlega algjörlega orkulaus - rétt meikaði að elda, ganga frá, þvo eina vél og hengja upp - hafði nefnilega lofað þeirri stuttu fyrir löngu að fara í bíó og það var efnt í lok dags og því enginn kominn heim fyrr en um kl 18 í dag - úff vona að það verði langt í svona marathon helgi - farin að SOFA !

2 comments:

Lóa Björk said...

Þær eru ótrúlegar sumar helgar og gott að komast í rúmið eftir svona törn. Til hamingju með báða ungana, þau eru greinilega efnilegt íþróttafólk bæði tvö. Alltaf svo gaman þegar svona vel gengur :o)

Inga Lara said...

uff, eg vard bara threytt ad lesa allt thetta - orkan i thessum bornum er otruleg