11.1.09

lífið er ljúft

já eiginlega bara, fór í dag með ofurmömmu á Esjuna, ekkert smá duglegar, skrítið eins og mér líður vel þegar ég er búin að vera svona úti að ég skuli ekki fara oftar ???? leti? frumkvæðisskortur? sérhlífni??? oh well hvað sem veldur þá finnst mér þetta geggjað og þarf að gera meira af því að fara svona út að labba. Annars fátt að frétta nema jú fór á fyrirlestur Óla Stef á fimmtudaginn og ég verð að segja að hann er mjög sérstakur og hann skildi mikið eftir sig amk er ég endalaust og hugsa og pæla um það sem hann kom inn á .... kannski meira um það síðar kannski ekki .......... áskorun - ræddi ákveðna þætti úr fyrirlestrinum við unglinginn og ef það skilar sér í bættum árangri um næstu helgi þá segi ég ykkur frá því - díll .... ok

2 comments:

ofurmamma said...

Já frábær gönguferð, enda yndislegt veður. Takk fyrir það. Já Óli var spes, hann skildi mann soldið eftir þannig að maður fór að pæla, sem er náttúrulega frábær árangur.

see ya

Anonymous said...

Já verst að þú getur ekki tekið hundinn minn með í þessar fjallgöngur.Kann betur við brettið en fjöllin.