21.1.09

Djísus allt að verða vitlaust

Já ég hef skoðanir á þessu eins og eflaust og vonandi allir en ein er sú skoðun mín öðrum fremri amk í augnblikinu og hún er sú að mótmælendur þurfa að beina mótmælum að bankamönnum, útrásarvíkingunum og já þeim ríkisstjórnarkonum og mönnum sem greiddu leið þeirra EN ekki gegn lögreglu - margir þeirra eru alveg 100% sammála mótmælendum en sinni þeir ekki starfi sínu þá eiga þeir á hættu brottrekstur og hver vill eiga það á hættu á þessum tímum - finnst að mörgu leiti þessi mótmæli einkennast af barnaskap þe hegðunin - endilega láta í sér heyra með hávaða og öskrum og allt það en sleppið íkveikjum og barsmíðum og sérstaklega í átt að lögreglunni - skítt með að henda eggjum í hús og bíla - mín vegna - en að veitast að þeim sem hafa ekkert til saka unnið - bara mín skoðun - við erum öll tengd á einhvern hátt myntkörfulánum, tapi á sparifé, einhverjum sem hefur misst vinnuna - og þessi starfsstétt er ekki undanþegin þeirri lífsreynslu! Mér finnst mótmælendur bara vera komnir í flokk með þeim sem komu okkur þangað sem við erum komin þe þeir eru farnir að sína vanvirðingu á eigum annara og á lífi annarra - sama framkoman en kannski er það einmitt málið - segir ekki í boðorðinu - komdu fram við aðra eins og þú vilt að komið sé fram við þig (og þína)

er að hlusta á Steingrím og Geir og ég segi bara - engar kosningar - látum þau samfylkinguna og sjálfstæðið sem situr með yfir 60% fylgi að baki sér - látum þau ljúka þessu - ekki senda inn aðra til að þrífa upp skítinn - látum þau gera það sjálf!

1 comment:

Inga Lara said...

Eg er sammala ther med kosningarnar, thad mun bara seinka thvi ad eh lagist thvi ad allt faeri i stopp i eh manudi og thad ma ekki vid thvi nuna.