25.1.09

Hreinskilni

Á föstudag þurfti ég vegna vinnunnar að fara inn á einn leikskólanna hér í bæ og þar hitti ég fyrir skottið sem hún ofurmamma vinkona mín á og hún er svo mikið krútt - stóðst ekki að smella einum á kinnina á henni því hún var svo sposk þegar hún leit á mig og sagði hæ - þá gall við í einni lítilli þarna " Ertu AMMA hennar" hahahahhaha elska þennan aldur - alltaf svo hrein og bein - já hefði svo sem getað verið amma hennar ef ég hefði ca 17-18 átt barn sem hefði átt barn líka um 17-18 ára aldurinn þá væri það barn einmitt um 5 ára aldur og ég amman en svo er nú ekki :0) annars barast besta helgi - snúttast og snúast og taka til og redda smá og vinna smá og fór svo Esjuna í morgun í alveg frábæru veðri og útsýnið vá! svakalega gaman - vorum að enda við að baka okkur vöfflur og nú er bara heimanám og vinna til að allt sé reddí í næstu viku sem mun innihalda langa daga og reyndar sú næsta líka - svei mér þá það verða komin jól aftur áður en ég veit af ;0)

1 comment:

Inga Lara said...

eg kalla ykkur god ad fara a Esjuna i Januar.... ekki beint thad em mer hefdi dottid i hug sem likamsraekt a thessum arstima. En langar thvilikt i voffulur med ollu. langt sidan ad eg bordadi svoleidis