12.2.09

It has been a long time ......

ég hef ekki bloggað - vá lengi en það er merki um að það sé gaman að vera til og nóg að gera sem tekur huga minn. Sem mamma byrja ég á englunum - jamm þau eru sko alveg að gera sitt afar vel - fengu frábærar einkunnir og umsagnir - meira að segja svo góðar að það varð að prenta út aftur fyrir þau bæði -- gelgjan fékk einkunnir um frábæra mætingu og frábær verkskil og bla bla í fagi sem hann hefur ekki enn farið í hahahhahahha bara skemmtilegt en hann var mikið að spá hvort hann þyrfti þá nokkuð að fara..... yha right en hann skemmti sér við að láta vita af þessu - það hafði enginn tekið eftir því híhí - en meðaleinkunn upp á tæpar 9 og allir meira en sáttir við unglinginn - Lillan bara gaman að lesa hennar -- hún er sögð sinna skóla að kostgæfni fara OFTAST eftir fyrirmælum (lesist jammm kippir í kynið og hefur SÍNAR skoðanir á hlutunum) en annars vinnusöm og í góðum samskiptum við starfsfólk og skólafélaga - jamm bara gaman - ég er á fullu að vinna alls konar verkefni í vinnunni og hef mjög gaman af ..... efast stundum að ég skili nægu enda vön klikkaðri vinnu frá fyrri vinnuveitanda en ég verð að segja að þetta er heilbrigðara vinnuumhverfi - maður vinnur frá því maður mætir og stundum eitthvað lengur en það er alveg innan eðlilegra marka og svo á maður frí á milli ;0) við í vinnunni stofnuðum fjallagönguhóp og höfum það sem af er þessu ári farið 5 sinnum saman á Esjuna - og gengið Akrafjallshring (6 tímar 13 km) og síðan er framundan áfram Esjan og svo Skarðsheiði og Botnsúlur og að lokum Hvannadalshnjúkur - við eigum eftir að sjá hvort maður skelli sér með en um að gera að vera með í undirbúningi þá er amk hægt að fara með. Fermingarundirbúningur er rétttttttttt að byrja og það er bara gaman. Annað ........... já við bara njótum þess eins og áður að vera til og varðandi kreppuna - kannski góðærið hafi aldrei hafi aldrei náð til okkar og þess vegna finnum við minna fyrir kreppu en jú hún krælir á sér sérstaklega á bílaláninum sem í stað þess að vera um 20 þús er 40 þús ......... og svo eins og allir hækkanir en þetta er eitt að hólum lífsins sem við bara kljúfum og svo kemur að því að við getum hætt að ganga upp og förum að ganga niður ......... við amk erum jafn kátt og fyrr - later all ..........

3 comments:

Anonymous said...

Jamm klárir krakkar fyndið Alex fékk mjög svipaða umsögn í 1.bekk var að kíkja á það.Kreppan já verð vör við hana í vinnunni og hækkandi lán. Það er svo gaman að ferma við búin að taka frá daginn mættum ætli verð ekki stórhríð !!!!!

Inga Lara said...

Gaman ad heyra ad thid hafid thad svona gott i godri samveru fjolskyldan og lika med theim sem eru ekki naerskyldir ykkur. Eg vaeri sko til i Hvannadalshnjuk med ykkur en thad gengur ekki upp fyrir mig i thetta skiptid.
Ju eg thekki Huldu Gunnars, er hun ss bekkjakennarinn hennar Hafrunar? Hun er voda god stelpa. Dottir vinafolks ma & pa og eg vann lika med systur hennar a H. Islandi i gamla daga

Lóa Björk said...

Flott systkin :o)
Kreppan hefur aðeins kíkt við á mínu heimili en ekki meira en svo að KEB gerði athugasemd um daginn, sagðist ekki finna neina breytingu. Það fannst mér gott að heyra :o)
Þið eruð rosa dugleg upp um öll fjöll :o) Ég fór einu sinni á Esjuna um daginn og finnst mikið afrek. Við erum að spá í Hvannadalshnjúkinn líka - ekki búin að ákveða okkur þó. Sú ferð er 2. maí ef farið verður!