26.2.09

veikindi.........

ekki mín sterka hlið en ég er svo lasin að það hálfa væri alveg nóg - hef ekki verið veik í tæp 5 ár en 40 stiga hiti er alveg flash back frá þeim tíma... kuldahrollur og beinverkir oj ekki mitt uppáhald. En life goes on -
unglingurinn fékk enn eina viðurkenninguna um síðustu helgi og nú eru þær þá orðnar 3 í vetur - fyrst var það frá Aftureldingu - efnilegastur 14 ára og yngri í frjálsum (það var í 3ja sinn sem hann fékk hana) síðan fékk hann frá bænum flottan minjagrip fyrir framúrskarandi árangur í frjálsum á árinu 2008 og síðan núna síðast frá bænum líka efnilegur skáti 2008 en þá viðurkenningu fengu þeir allir ´95 strákarnir - mjög sniðugt að taka hóp frekar en einn - það styrkjir þá í að halda áfram ;0) krúttleg mynd af þeim á heimasíðu mos
við erum svona í róglegheitunum að skoða fermingarföt og annað því tengt - bara gaman, unglingurin með miklar og ákveðnar skoðanir á þeim sem og á servéttum og slíku sem bara auðveldar málið - mamma glöð með það
Later - núna aftur að leggja sig - engin orka :0/

3 comments:

ofurmamma said...

Til hamingju með prinsinn, hann stendur sig vel.

Knús í veikindunum....

Inga Lara said...

oj thad er svo leidinlegt ad fa svona flensu, hef fengid of mikid af theim sjalf ad undanfornu svo eg veit hvad thu att vid. Gott ad drengurinn hefur skodanir, finnst leidinlegt folk sem hefur thaer ekki! Samt hissa ad hann hafi skodanir a servettum....

Lóa Björk said...

Hef ekki orðið almennilega lasin í nokkur ár - bíð bara eftir ósköpunum. Finn alveg til með þér maður verður svooo slappur.
Til hamingju með drenginn, flottur gaur :o)
Erum líka í fermingarhugleiðingum, verður gaman.
Láttu þér batna, stórt knús!