7.3.09

Líður betur

jamm nú er heilsan að skríða saman - hósta samt enn alveg svakalega en allt í rétta átt. Missti af frábærum útivistardegi og ferð á Skarðsheiði en það er víst ekkert við því að gera og í staðin gerði ég heilmikið - fór með my friend the supermom :0) á stelpurölt og árangur varð meiri en ég hafði vonað, smá fermingarstúss eiginlega óvænt þannig lagað og síðan kaffihús og bíóferð á frábæra mynd - viltu vinna milljarð - ég var búin að lesa bókina og segi bara - myndin er fín en endilega lesið bókina. Myndin segir í raun - taktu eftir því sem á vegi þínum verður og þú veist aldrei nema það eigi eftir að koma þér að góðum notum. Ekki gera lítið úr smáatriðinum og mundu að allir sem verða á vegi þínum kenna þér eitthvað - þó þú áttir þig ekki á því fyrr en síðar. Góður dagur í frábærum félagaskap með einni sem ég pant fá að vera með í herbergi á elliheimilinu ef við verðum báðar enn single hahahaha

2 comments:

ofurmamma said...

Takk elskan, við skulum nú vona að við verðum búnar að ganga í gengum allavega eina sambúð í viðbót áður en á elliheimilið verður komið, en jafnvel orðnar single aftur hehehe...

ofurmamma said...

Takk fyrir frábæran dag ;)