Já þá er það orðið ljóst, fermingarfötin á piltinn fara ekki undir 60 þús og það er án skóparsins! Jamm minns þarf að versla í fullorðins búðum og verslanir eins og 17 og Retro - United nation outfitters eða hvað þetta heitir allt saman eiga ekki neitt sem passar á hann - í einni búðinni var sagt við mig - nei veistu við tókum bara inn Medium - small - extra small og XXS og hana nú! hehe minn mðaur þarf jakka númer 50 eða 94 í long size og buxurnar eru komnar í 34/34 og þau ódýrustu sem við fundum kosta 45 þús í Jack and Jones en hann tekur ekkert annað í mál en að fá jakkaföt og svört skulu þau vera - ekkert teinótt og alls ekki eitthvað ósamstætt og jammmm mjög pikkí á efni (fengi hann t.d. ekki í flauel þó ég myndi borga honum)-já þetta er barnið mitt sem vill bara snigla og blóðugt nautakjöt í veislunni (sem hann er ekki að fá nota bene) en eins og hann er almennt nægjusamur þá er hann með dýran smekk eða kannski bara svona 2007 smekk haha en hann segir - sko ég held að ég sé búinn að taka út stærðina og ég mun nota jakkaföt - árhátíð skólans og svo telur hann upp alls kyns tilefni. mamman varð nú líka bara að snúa sér undan þegar hann var kominn í múnderinguna og þurka tárin - minnnnnnnnns var handsome og ekkert skrítið að maður mismæli sig og segi útskrift en ekki ferming því hann er bara orðin aðeins of fullorðinn eitthvað þessa daganna fyrir mömmu sína. Eða eins og hann sagði "það eru 414 skóladagar þar til ég er búinn með grunnskólann!" ha! sagði ég - jamm 2 ár 180 skóladagar hvort og síðan eru eftir 54 skóladagar af þessum vetri.......... já sæll og liggur þér eitthvað á? nei bara hlakka til ;0) og bara fínt að vita þetta og vera meðvitaður um að njóta berskunnar -
AMEN - takk fyrir - Kjaftstopp!
Mamman var annars afar glöð þegar hún datt niður á kjól handa prinsessunni enda vill hún líka fá að vera fín og þar sem þau fara í myndatöku þá verður hún líka að fá að vera í nýju - en lillan var sko ekki tekin með heldur valdi bara mamman fallegan kjól á góðu verði og skó við - glöð með það.
kveðja fermingarmamman sem er svo ánægð með árangur helgarinnar
8.3.09
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Gaman að lesa um fermingarstússið. Við eigum svooo ólíka drengi. Minn er svo sáttur við að vera ekki í svörtu og er í flaueli, svo mjúkt. Ef hann mætti ráða þá færi hann í íþróttabuxur og bol undir kyrtilinn :o) Og helst vill hann ekki láta taka myndir af sér í fermingarfötunum ha ha ha! Hingað til hefur hann ekki viljað vera í sparifötum á svona unglingaböllum - skrýtin snáði :o)
Vona að Hafrún sé búin að jafna sig eftir veikindi gærdagsins - KBB liggur hérna aftur heima í dag eftir ælutörn í gærkvöldi!
kv. Lóa
va hvad fot eru dyr a Islandi.... En hlakka til ad sja myndirnar af ykkur ollum uppstriludum
Post a Comment