13.3.09

það sem þér viljið að aðrir menn ...

gjöri yður, það skulið þér og þeim gjöra .... minnir mig að þetta hafi verið - ég var að hugsa í dag að þetta var manni brýnt sem barn að koma fram við aðra eins og maður vill að aðrir komi fram við mann ....... EN stóra spurningin er - virkar þetta líka þá þannig að ég eigi að koma fram við aðra eins og þeir koma fram við mig af því að það er þannig sem þeir vilja að komið sé fram við þá .......... nei ég veit að það er ekki hugsað þannig en samt á ekki allt að ganga í báðar áttir? eða ætti maður kannski að prófa það og sjá hvort það skili árangri ..... æji bara að pæla - fékk ákveðna framkomu í dag sem kom mér í opna skjöldu - svona rýting í bakið og þetta er VOND tilfinning,

Alheimurinn dæmir okkur ekki,
hann sér okkur einungis fyrir afleiðingum
kennslustundum og tækifærum
til að ná jafnvægi og læra
af lögmáli orsaka og afleiðinga
Umburðalyndi sýnir okkur að
við erum hvert og eitt að gera okkar besta
innan marka núverandi
sannfæringar og getu.

Dan Millman

No comments: