10.12.08

pínu geld í þessu bloggi ;0)

já stundum veit ég ekkert um hvað maður ætti svo sem að blogga því ekki nenni ég að blogga um stjórnmál og kreppu - hef alltaf verið óflokksbundin og síðast þegar ég kaus til alþingiskostninga fannst mér þetta lið vera svo gelt að ég ákvað inn í kjörklefa að skila auðu og sýna þannig mitt álit á endalausri fjölskyldu og klíkupólitíkinni sem hefur verið alls ráðandi hér um alltof langan tíma - þetta er allt tengt þetta pakk í bak og fyrir - bæði peningafólk þjóðarinnar og pólitíkusar landsins! og hana nú!
Ég man í MR hér forðum daga eftir að hafa setið fyrir framan skrifstofu Guðna rektors og hlustað á hann þruma yfir einum pilti sem var af þekktu fólki kominn og hann þéraði en þegar kom að mér sem hafði það til saka unnið að hafa lært yfir mig - þe eftir að hafa farið í gegnum skóla með annarri fór að taka námið alvarlega og hætti í minni vinnu sem ég hafði og hætti í tónlistarnámi og dansnámi og öllu félagslífi - fór að taka námið alvarlega og fór að læra öllum stundum og uppskar FALL í dönsku og ensku og var kölluð á teppið og þrumað yfir mér að ég skyldi nú gera mér grein fyrir því að það þýddi ekkert að vera að slóra, vinna með námi eða annað heldur bara vakna og læra og læra um helgar (hóst einmitt did that og....) og ég var þúuð allan tíman enda höfðu mínir foreldrar ekki gengið veg hins lærða skóla heldur hinn virta veg húsmæðraskóla og bændaskóla og já mín er þrjósk þá sem nú og hætti strax að læra - þe sat tíma - lærði í strætó - fór að vinna aftur og spila og dansa og vera til og féll aldrei eftir það - en þetta hefur alltaf setið í mér þessi fyrirlitning og ekki bara frá honum heldur líka kennurum sem sögðu - "og hverra manna ert þú?" og hvað gera foreldrar þínir? Mínir foreldrar eru komin af vinnusömu og heiðarlegu fólki og það kann að sjá um sína, hefur þurft að þola kreppur og standa það af sér með stæl!!! já ég er stolt af þeim arfleið sem ég er af :0)
vá gaman að skrifa bara svona um eitthvað ...... I LIKE !

2 comments:

Lóa Björk said...

yikes og ekki ertu gömul. Þérað og þúað eftir hverra manna þú ert? Afabarn Guðna var með mér í árgangi í grunnskóla, trúðu mér hún bar það ekki með sér að vera af svona "merkilegu" menntafólki komin. Forhertari krakka var vart að finna á sínum tíma :o)
Eina skipti sem ég hef verið spurð hverra manna ég væri var í boði hjá ömmu og afa, viðkomandi vildi vita hvaða systkini ætti stelpuna. Spurt var "hver á þig góða mín?" Mitt svar "mamma mín og pabbi!" Uppskar hlátur!
kv. Lóa

Inga Lara said...

Mennta og manna mont hefur alltaf pirrad mig og hefur hun elskuleg modur amma min alltaf verid svolitid i thessum flokki: theas, buktad fyrir eh sem a ad vera eh finni af thvi ad hann kemur ur eh serstakri fjolskyldu sem a ad vera eh merkilegri en vid hin.