11.5.09

ég er naut en hvort ég er svona .....

Nautið:
Þrjóskan er líklega það skapgerðareinkenni Nautsins, sem þekktast er. Fólk í þessu merki hefur hins vegar einnig gnótt jákvæðra og efrisóknarverðra eiginleika.
Nautið þekkist auðveldlega á framkomu sinni. Það er sterkt og þögult, fast fyrir og rólegt.
Þetta eru afar heimakærir einstaklingar, sem kjósa fremur að aðrir sæki þá heim en að leggjast sjálfir í ferðalög; löng eða stutt. Fólk í þessu srjörnumeki reiðist mjög sjaldan. Jafnvel uppstökkustu Naut missa kannski ekki stjórn á skapi sínu nema einu sinni eða tvisvar á ári. En þegar þau reiðast.... þá fer það svo sannarlega ekki framhjá neinum.
Þetta fólk er oft hávaxið HAHAHHAHA já einmitt
og stórskorið, allt frá því að vera vöðvastælt upp í það að vera akfeitt.
Nautið er ekki taugaveiklaður eða órólegur einstaklingur. Það er í eðli hans að sýna ró og taka hlutunum með jafnaðargeði. Fólk í Nautsmerkinu er viðkvæmt fyrir sýkingum og áverkum á hálsi og í koki. Fætur þess eru einnig í ákveðinni hættu. Þetta fólk getur hins vegar verið hraustast allra, ef það varast sinnuleysi og nýrnasýkingar.
Þörf Nautsins fyrir öryggi gerir það að verkum, að það fer skynsamlega að ráði sínu þegar peningar eru annars vegar. Nautinu helst vel á þeim fjármunum, sem það kemst yfir.

5 comments:

Inga systir said...

Hæ Naut
Til hamingju með gærdaginn.
Já báðir drengirnir mínir naut en eins og svart og hvítt en eitt sameiginlegt með þér þrjóskuna hægt að komast langt á henni.

Inga stóra systir

Anonymous said...

eru þeir ekki líka heimakærir - rólegir og .... jú við erum lík frændsystkinin ;0)

Inga Lara said...

Ahugavert ad lesa thetta thvi ad pabbi er lika naut og thid erud nu ekki lik, nema hvad ad thid reidist hvorgut mjog oft og tha meina eg fokreidist. Sumt a vid thig: heimakaer, thrjosk og roleg.

Hildur said...

Það er nú ansi margt rétt í þessu....

Inga Lara said...

Og hvar er naesta faersla....?