4.5.09

Góður fjallamaður kann að snúa við....

sagði fararstjórinn þegar hann sá vonbrigðar svipinn á okkur þegar hann tilkynnti að við yrðum að snua við, þó að Hnjúkurinn væri handan við hæðina eða bara örstutt frá - við vorum komin í 1850 metra hæð - hækkun upp á 250 voru eftir þe sléttan sem er ca 3km á lengd og lítil sem engin hækkun (bara fullt af sprungum) og síðan klifrið á þennan litla klett sem er þarna ;0) en við því var bara ekkert að gera - skafrenningur, rok og þoka, og veðurguðurnir áttu vinninginn en þetta var mögnuð ferð. Við lögðum af stað frá gististað um miðnætti og hófum göngu um kl 01:30 í hálfu tungli og þal smá tunglbirtu og miklu myrkri - stjörnur á stangli milli skýja en þegar birta fór af degi sáum við vítt til sjávar og strandar en lítið til fjalla. OG upp gengum við í 8 klst skref fyrir skref í orðsins fyllstu, því farið var hægt og rólega. Fyrst var gengið Sandskeiðið en það er brött brekka í 3-4 tíma í urði og grjóti, síðan tóku við tvær minni brekkur þe í lengd en þokkalegar í bratta og að þeim loknum eða í um 1100 metra hæð var komið að jökulrönd en þá fóru allir í línu engin þörf var fyrir brodda þar sem snjórinn var mikill (og fyrir vikið var gangan þyngri en ella) Brekkan endalausa tók þá við og var vissulega endalaus en maður gerði sér ekki mikið grein fyrir því þar sem varla sást úr augum - reyndar varð ein línan fyrir því að farastjórinn þeirra hvarf þeim alveg og hafði lent í sprungu, þarna var fær maður í hverri línu og farastjórar hinna línanna aðstoðuðu hann við að komast upp en vissulega sló þögn á mannskapinn og ekki laust við að hjartað tæki aukaslag en allir héldu ró sinni. Við vorum líkalega tæpa fimm tíma að ganga hana ;0) Á leiðinni niður létti veðri og þá sáum við hvað brekkan var óendanleg og já fúlt en satt sáum líka Hnjúkinn en hann bara sýndi sig í kannski 15-30 mín - Hefðum við lagt ca klukkustund seinna af stað þá hefðum við hitt á að vera á réttum tíma... næst segja sumir .... við sjáum til með það - líka gaman að prófa eitthvað annað. En þessir 4 manuðir í undirbúningi fermingar og þessarar göngu hafa verið skemmitlegir og nú er bara að sjá hvað maður tekur upp á næst..... fallhlífastökk kannski? eða ...... hugmyndir ... einhver?

2 comments:

Inga Lara said...

Va, thetta hefur verid frabaert aevintyri og ekkert sma afrek thratt fyrir ad thid komust ekki a toppinn. En er sammala fararstjoranum, better safe than sorry.

Lóa Björk said...

Hefði nú ekki viljað lesa einhverja hrakfarasögu eða heyra um ykkur í fréttunum. Þið voruð mjög dugleg og um að gera að vera sáttur við afrekið sem er heilmikið :o)

Já og þetta með næsta uppátæki - endilega bjallaðu í BH og láttu hann segja þér reynslu sína af fallhlífastökki áður en þú ákveður þig ;o)