1.5.09

Að lifa er að neyta þeirra orku, sem í okkur býr.

Jæja þá er komið að því - eftir 16 Esjuferðir, Akrafjallið og Botnsúlurnar er komið að hnjúknum - eflaust hefði verið hægt að æfa meira en við komumst að því áður en ný vinnuvika rennur upp - ekki laust við kvíða og spennuhnút í maganum. Best að skella sér í að klára að pakka og nesta og það allt - hugsið til okkar og sendið okkur viðráðanlegt veður og endalaust þol.....
Halldór okkar Laxness sagði í Kristnihaldi undir jökli -
"Fyrst er að vilja, restin er tækni"
ég hef það á tilfinningunni að það sé mikið til í því.

2 comments:

Inga Lara said...

Eg er sammala ther ad thad er mikid til i thvi sem Laxness sagdi. Gangi ther vel og eg sendi ther hlyja strauma. hlakka til ad sja myndir.

ofurmamma said...

Til hamingju með áfangann, þó þið hefðuð eflaust viljað klára dæmið, þá stóðuð þið ykkur frábærlega.