27.9.09
Bækur
Mér finnst alveg svakalega gaman að lesa og þarf að halda utan um hvað ég er búin að lesa - spurning um að kaupa sér lestrardagbókina sem seld er á bókasafninu - gaf einmitt systrum mínum hana í jólagjöf en þar getur maður skrifað bækur sem maður hefur lesið - eftir hvern þær eru og hvernig manni fannst - núna er ég að lesa "Á ég að gæta systur minnar?" mögnuð bók sem vekur mann verulega til umhugsunar ... mæli með henni Eins hafa bækur sænsku stelpunnar (Camilla) minnir mig að hún heitir - mjög skemmtilegar spennubækur.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
Þessi lestrardagbók er góð hugmynd, fjárfesti einmitt í einni á síðasta ári. Gaman að eiga skjalfest hvað maður hefur verið að lesa og hvernig manni fannst sagan. Er að spá í að gefa krökkunum svona bók - gaman kannski að eiga þetta þegar þau verða eldri, sjá hvernig smekkurinn á lesefni breytist í gegnum árin...
Já maður mætti lesa meira og horfa minna á TV
Ég sá myndina hér í Bergen;)
kv
Post a Comment