19.9.09
blogg ... er það eins og ....
dagbók? hef verið að hugsa um þetta blogg allt. Persónulega finnst mér gaman að mörgum pennum og það eru ákveðnir pennar sem ég sakna - til dæmis er ein vinkona sem er alveg snilldar penni, farin að draga úr bloggi og ég velti því fyrir mér hvort fólk almennt nenni ekki að blogga lengur eins og ég í sumar eða hvort fólk sé farið á fésið í staðinn? vissulega er fésið svona day to day og þar henda margir inn því helsta en fyrir mér er blogg - meiri dagbók - eitthvað sem geymist og þar er hægt að segja frá líðandi stundu en líka jafnvel rifja upp liðna tíð og festa þannig söguna sína á blað fyrir komandi kynslóðir - amk hef ég verið að velta því fyrir mér hvort gaman væri að rifja upp árin, tékk á hvað maður man og hvað stendur upp úr? Bara pæling
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Mér finnst svo gaman að skrifa svona um daginn og veginn og hvað er að gerast í lífi fjölskyldunnar. Sumum finnst það voða ómerkilegt eitthvað og að setja það á netið alveg síðasta sort. En mér finnst þetta samt gaman því það eru svo mörg lítil augnablik sem maður festir á "blað" sem annars gleymast. Gaman að rifja upp seinna og já gaman kannski fyrir ungana seinna meir að sjá skemmtilegar pælingar og spurningar sem þau veltu fyrir sér þegar þau voru yngri :o)
Post a Comment