17.9.09

Göngusumarið mikla

jamm - eftir ansi margar Esjuferðir - ferðir á Akrafjall, Botsnúlur og Hvannadalshnjúk var ekkert hætt heldur haldið áfram og Esjan tekin nokkrum sinnum í viðbót eða samtals hafa verið farnar 21 ferð þangað, Móskarðshnjúkum var bætt við, tindunum 7 hér í Mosó (tæpir 40 km á einum degi) Snæfellsjökull, Laugarvegurinn (55 km), Múlinn (á Mýrunum), litlir tindar hér og þar með lillunni, og Hornstrandir en þar gekk ég tæpa 80km allt í allt og inn í því nokkrir tindar - jamm bara gaman og ekki sér fyrir endan á þessu sporti því fram undan er plan hjá göngufélögun en ég reyndar missi af fyrstu ferðinni þann 3.okt nk - verð busy með 7 ára afmæli skvísunnar ...... veit ekki alveg hvort maður skrifi hverja ferð fyrir sig en það gæti orðið gaman - fyrir utan þessar ferðir þetta sumarið fórum við í Húsafell og gengum þar mikið - ég, lillan og gelgjan, við fórum líka í siglingu um Breiðarfjörð, fórum á landsmót unglinga á Sauðakrók og Íslandsmeistaramót í frjálsum á Höfn - já og MA útskrifa á Akureyri - möo henst landshorna á milli og upp á toppa og tinda og var ákveðið að september yrði smá hvíldarmánuður ;0) og þrif mánuður ná smá áttum áður en veturinn skellur á. Vetur sem legst mjög vel í mig - ég er viss um að hann verður skemmtilegur og eftirminnilegur ;0) till next - it feels good to be back!!!!
kveðja Maddamamma

2 comments:

ofurmamma said...

Mér líst vel á þig... byrjar með trompi. Já þetta var bara frábært sumar.

Lóa Björk said...

púff - ég var bara uppgefin að lesa þetta allt saman. Brjálað að gera hjá ykkur í sumar, er þetta svona hjá skátafjölskyldum, verð ég bara næsta sumar út um allt í gönguskónum :o) - Þá hlakka ég nú bara til ;o)