úff - já aldeilis að hún náði okkur - öllum þessi flensa. Verst fór þó unglingurinn en hann lá í móki í á 3ja sólarhring og í dag man hann ekkert eftir síðustu helgi og ég eftir að hafa vakað yfir honum var með tárin í augunum yfir því að geta svona lítið gert og yfir því að vera með hann ein. Að sitja og vaka yfir barni sem er með 41 stigs hita svona lengi og með óráði og ná engu sambandi við hann er bara ekki eitthvað sem mig langar að lenda í aftur.
Vetrarmyrkrið er komið og skrítið að liggja upp rúmi klukkan 8 að morgni og það er ennþá dimmt úti og núna klukkan 20 að kvöldi er orðið dimmt - mig minnti ekki að þetta væri orðin svona strax í september en þá kveiki ég bara á kertum og finnst það voða notalegt.
23.9.09
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Já kertin eru bráðnauðsynleg...
Gott að veikindin eru yfirstaðin - pestin komin hingað en leggst ekki svona af fullum þunga á KBB sem lagðist í flensu. Hún er að jafna sig og vonandi góð á morgun :o)
Post a Comment