21.9.08

Bíllaus helgi í útjaðri höfuðborgarinnar

já bíllinn er bilaður - þvílíkt bölv... vesen, vona að það sé eitthvað lítilvægt en amk er hann óökuhæfur og útlit fyrir að ég þurfi að spælsa á vökubíl til að koma honum á verkstæði - leyfi ykkur að fylgjast með því ...... Annars tíðindalaus helgi -var á Hafravatnsdeginum á laugardaginn, heppnaðist svakalega vel, yfir 100 manns mættu og glöð börn sem létu veður lítið á sig fá, sannir skátar þar á ferð. Fór síðan með mömmu á Mamma mía í dag og ég held að sú gamla hafi bara skemmt sér vel, ég var að sjá myndina í annað sinn og skemmti mér ekki síður núna en mjög ólík upplifun - síðast vorum við vinkonurnar bara í hláturskasti en núna var ég og já eiginlega salurinn öllu rólegri enda mikið um eldra fólk og börn. En alltaf gaman að gera eitthvað svona afslappandi á sunnudegi. Vona að vikan framundan verði svona meðal busy þar sem undanfarnar vikur hafa verið of busy og síðan skellur á mjög annasöm vika þegar lillan á afmæli - jább mín að verða 6 ára! og samkvæmt síðasta samtali vill hún 4 afmæli - já halló! ekki alveg að gera sig en plássið er lítið og við verðum að finna einhvern flöt á hverjum eigi að bjóða og svo frv og hvenær :0)

1 comment:

ofurmamma said...

Hrikalegt að vera bíllaus, váá, ég gæti það ekki, ekki einn dag. Vona að þetta sé eitthvað smáræði.

kv.