10.9.08

busy busy

mikið að gera þessa vikurnar en byrjum á einhverju - jú við vinkonurnar fórum til Koben - shopped till we dropped og höfðum gaman af, gerðumst líka menningarlegar og fórum á tvær málverkakoktelopnanir - varð að setja þetta í eitt orð því mér finnst það frekar fyndið að hafa farið á opnun á málverkasýningu - ég sem fer aldrei á málverkasýningu og hvað þá svona opnanir með kotel og sendiherra und alles
önnur var sýning Helga Þorgils og hin hún Nina sem ég sagði frá fyrr. Þetta var skemmtileg upplifun og að fara í Tívoli og öskra sig hásan var líka kikk - góð ferð í alla staði en svakalega var maður snöggur að detta í hraðan hér heima, klikkað að gera bæði í vinnu og heima svo ekki sé minnst á kynningar skólanna sem taka sinn tíma. Svo toppaði það daginn í dag að geitungur stakk lilluna (ekki nóg með að mávurinn hafi tekið nestið þarna um daginn) hvað er með dýrin og hana? Hún er enn skelkuð eftir að hafa um árið stigið á geitungabú og verið stungin í bak og fyrir.
Jæja best að fara að lesa blöðin og sjá hvað er að gerast í heiminum og á landinu - maður datt bara alveg út = lesist náði að slaka vel á og hvílast í Koben!

2 comments:

ofurmamma said...

Velkomnar heim, búin að setja Visa kortið í kælingu hehehe.... Frábært að heyra að þið hafið skemmt ykkur vel, ég bjóst svo sem alls ekki við öðru. Verst með Lilluna, annars er þetta nú fljótt að jafna sig.
Allt á fullu hér líka.
heyrumst.
KR

Inga Lara said...

gaman ad heyra ad Koben tokst svona vel. Verra med geitunginn! Vonandi er bagtid buid nuna