já þá er loksins komið að því - við vinkonurnar erum að fara í borgarferð - toga í tuskur, blaðra og eflaust sötra smá hvítvín en við ætlum líka að vera cultíveraðar og fara á sýningu í Jónshúsi - opnun á föstudag á sýningu Nítu Helene Pálsson
og hér er texti sem fylgir með sýningu hennar - finnst hann góður, alveg í mínum anda - læt hann fylgja með - meira síðar
Hugleiðing
Hvað er það sem kallast líf?
Sem er svo viðkvæmt að það þarf ekki annað en eitt augnablik til að eyða því. Við hröðum okkur í gegnum það, líkt og við séum að flýta okkur að hitta dauðann, dauðann sem flest okkar óttast. Eða líf sem við dólum okkur í gegnum eins og það sé einskins virði, á meðan við veltum því fyrir okkur hvernig við eigum að „drepa tímann“, tímann sem er það dýrmætasta sem við eigum.
Hve oft setjumst við í raun niður og hugsum út í það hversu mikið af tíma okkar við notum í óþarfa hluti.
Hve oft hlaupum við ekki úr einu í annað án þess að skilja að lífið er það sem liggur á milli. Í stað þess að gera þetta að ævintýraferð um ókannaðar slóðir, flýtum við okkur á handahlaupum frá vöggu til grafar.
Látum umhverfið hafa áhrif á val okkar, hvar við eigum að staldra við og hvað við eigum að taka með okkur. En við getum valið hvort við ætlum að vera rík eða fátæk. Fundið gildin í tilverunni á eigin forsendum eða fylgja þeim sem vita hvað allt kostar en vita ekkert hvers virði. Sem kaupa sig í gegnum lífið, hvort sem er í starfi eða leik, í stað þess að lifa. Að skilja að lífið snýst ekki um að komast áfram heldur að vera til og njóta á leiðinni.
Listin að lifa.
Hin sanna list.
Snýst ekki um að skaffa mikið til að lifa af, heldur eitthvað að lifa fyrir.
Listin er að nýta daginn í dag.
Njóttu lífsins í dag því þú veist aldrei hvenær augnablikið kemur sem rænir þig framtíðinni.
3.9.08
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Alveg frábær texti og ekta þú ;-) Góða skemmtun
njottu vel ad vera i Koben
Eg vildi ad eg vaeri tharna lika en eg skal med ykkur ur fjarlaegd eftir godar nidurstodur i minum malum
Post a Comment