15.9.08

hugsi hugsi

já litið bloggað - enda ekki alveg orðin vön þessu. Sat Menntaþing sl föstudag sem haldið var í tilefni af nýju menntastefnunni og nýju leik-, grunn- og framhaldsskóla lögunum, já margt að breytast og verður gaman að fylgjast með þeirri framvindu. Gaman að sjá hve margir mættu eða um 800 manns og jákvæðnin skein í gegn og spenna í fólki yfir nýjum tækifærum til að breyta skólagöngunni. Þarna voru ma fólk úr atvinnulífinu sem ma. sögðu að það skipti engu máli í raun hvaða námsefni nákvæmlega börn lærðu heldur væri mikilvægast að þau kæmu út úr skólakerfinu sjálfstæð, með sjálfstraust, kunni að afla sér þekkingar, sýni frumkvæði og áræðni, elju og dugnað til að takast á við það sem að höndum ber. Ég er svo innilega sammála, finnst t.d. sögukennsla á Íslandi vera alveg á röngum vegarhelmingi. Saga er eitthvað sem situr bara ekki í börnum nema annað hvort liggi fyrir mikill áhugi eða óvenju mikil þroski til að geta innbyrt efnið og séð heildarmyndina. Held að leggja eigi mun meiri áherslu á framsögn, efnisleit, þekkingarmiðlun og sköpun, ásamt áður nefndum þáttum.
Annars erum við síkát, teljum niður í 6 ára afmælið, fermingardagur verið ákveðinn og allt að falla í skorður nema það að finna tíma fyrir mömmuna til að gera eitthvað fyrir sjálfa sig í hverri viku helst tengt hreyfingu en það er ekki að virka að ætla að æfa kl 05:30-06:30 því stöðin opnar ekki svo snemma og er svo skrítið að ég virðist þurfa að sofa :0( en eins og staðan er í dag þá væri það eini tíminn en heilsan mín leyfir ekki að skerða hvíld/svefn þannig að ef þið lumið á lausninni - feel free to share it with me - tek fram að ég vinn til ca 17 og þá hef ég 3 tíma til að vera með lillunni og sinna henni ásamt þvi að elda og svoleiðis svo er unglingurinn farinn að æfa stundum seinna og skátafundir hefjast kl 20 þannig að þá þarf að hóa í pössun ... sem líka kostar .... ekki alveg að ´"digga né fíla" þetta ástand en ég finn einhverja lausn
:0) með Polyönnu kveðju

2 comments:

Inga Lara said...

taka 30 min i hadeginu - thad telur allt saman thott stutt se

Anonymous said...

já góð hugmynd - ég fæ einmitt 30 mín í mat - prófa það næ pottþétt niður stigann og einn góðan labb hring og upp aftur og eins og þú sagðir - það telur ;0) en áskil mér rétt að bíða af mér þetta klikkaða rok og rigningu sem hér HAHAAHHAHHA svo er líka að hlægja smá - það telur big ;0)