27.9.08

Þriðja ársfjórðungi að ljúka

Ég er greinilega svona einu sinni í viku kona hvað varðar að blogga, annað hvort finnst mér þetta þá ekki skemmtilegt sem ég reyndar held að mér finnist nú - eða mér finnst ekki nógu merkilegt að gerast eða bara það er of mikið að gera - jú einmitt það er málið - það er of mikið að gera hjá mér ;0) en mér finnst það bara skemmtilegt. Mjög skrítið að finna ekki svona verðbréfamarkaðs tilfinningu eins og á fyrri vinnustað - þess í stað haustverkin - brjálað að gera í alls kyns foreldrakvöldum og þess háttar. Já bílinn bilaði - háspennukefli og eitthvað fleira en það ásamt ástandskoðun (finnst þetta orð frekar skemmitlegt - voru konur ekki í ástandinu ef þær voru að dinglast í Könunum hér um árið ?) en já 100 þús hljóp þar út um gluggann - skemmtilegt. Var með saumaklúbb á þriðjudag sem var mjög skemmtilegt alltaf gaman að hitta þessar stelpur, þær eru svo flottar, ég er rík að eiga svona vinkonur. Síðan á miðvikudag vorum við með fræðslufund fyrir foreldra um matarræði barna - skemmtilegt og fræðandi. Fimmtudagskvöld fór í að gera unglinginn kláran í útileigu sem hófst í morgun en þar þurfti hver og einn að hafa allan mat og hafa í huga að engin eldunaraðstaða er á staðnum bara taka með prímus og hita vatn - en í gærkvöldi voru við kellurnar á bæjó á djammi í golfskálanum sem var mjög skemmtilegt og í dag undirbúningur að afmæli Lillurnar sem verða reyndar 3 þetta árið - meira um það að því loknu. En vá hvað ég hlakka til þegar þessi vika er að baki - þá held ég að lítið sem ekkert sé planað - amk vona ég ekki - kroppurinn minn orðinn langþreyttur og það veit aldrei á gott. Lúsin er komin og búið að kemba alla i bak og fyrir ekkert orðin vör við neitt - hef reyndar aldrei fengið hana á heimilið -sumir segja að hún fari í manngreiningarálið - sel það ekki dýrara en .....
Ekkert svo sem meira að frétta í bili - svona er lífið hér og mér finnst það bara fullkomið :0) og þemað í þessu bloggi var orðið "SKEMMTILEGT"

1 comment:

Inga Lara said...

tilhamingju med daginn hja prinsessunni. Vona ad afmaelid hafi verdid mega success.