5.10.08
Æskudraumar
Afmælisvikan liðin og lillan sátt við sitt ;0) mamman eins og undin tuska enda 3 afmæli að baki. Þetta var skrítin vika og eiginlega fengin að hún er búin (krepputal og snjókoma!). Afmælin gengu vel fyrir sig og skemmtilegt að segja frá því að í afmælinu þar sem saman voru komin jafnaldrarnir og vinirnir sl 3 ár ára, þá fóru í gang umræður um hvað þau vildu verða þegar þau yrðu stór. Ein stúlkan ætlar að verða læknir ein fóstra ein lögga og ein íssali (skemmtileg hugmynd á Íslandi) strákarnir skiptust í löggu, skipstjóra og leikara. Þetta var skemmtilegt í ljósi þess að á föstudagskvöldinu var deildin mín að hittast í mat og áttu allir að koma klæddir í því sem þeir færu í til vinnu ef þeir væru í því starfi sem þá dreymdi um sem barn en ekkert okkar er í þeim störfum en þar komu þessi störf: lögga, rithöfundur, þroskaþjálfi, fótboltaþjálfari, bóndakona, læknir og dýralæknir. Í ljósi þess að við erum ekki í "drauma" starfinu okkar þá um verður gaman að fylgjast með þessum krökkum hvort þau verði trú sínum draumum. Ég held nefnilega að við eigum að halda í æskudrauma okkar, held að þá séum við næst því sem við erum best í að upplagi þe ég held að með aldrinum látum við það sem teljum vera skynsamlegast ráða för í stað þess að halda okkur við það sem hjartað og löngunin sagði til um. Vissulega er ekki úr vegi að láta draumana ræstast þó við séum orðin eldri amk að einhverju leiti en í umræðunni kom líka í ljós að flestir áttu fleiri en einn draum. Ég sem barn vildi verða forseti Íslands ... hver segir að ég geti ekki látið þann draum rætast? haha
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
en skemmtileg hugmynd ad dress code fyrir vinnu matarbod. Hverning er haegt ad klaeda sig upp sem Forseti Islands?
haha - sko ég átti tvo drauma og notaði hinn dýralækna drauminn en forsetinn er bara fínn eða er það ekki ? Kv Mm
Ég myndi sko kjósa þig ;o)
Kv. Lóa
Post a Comment