5.10.08

Bleikur mánuður


Staðreyndir
● Ár hvert greinast um 175 íslenskar konur með brjóstakrabbamein.
● Helmingur þeirra greinist á aldrinum frá 50 til 69 ára en þær yngstu eru á þrítugsaldri.
● Meðalaldur við greiningu sjúkdómsins er 61 ár.
● Lífshorfurnar hafa batnað mikið. Um 50% kvenna sem greindust með brjóstakrabbamein fyrir fjörutíu árum lifðu í fimm ár eða lengur en nú geta um 90% vænst þess að lifa svo lengi.
● Nú eru á lífi um 2000 konur sem fengið hafa brjóstakrabbamein.
● Ár hvert deyja um 35 konur úr brjóstakrabbameini.
● Samkvæmt útreikningum frá Krabbameinsskránni getur tíunda hver kona búist við að fá brjóstakrabbamein.
● Meira en fjórða hvert krabbamein hjá konum er brjóstakrabbamein (28%).
● Talið er að 5-10% brjóstakrabbameina skýrist af arfgengum þáttum.
● Hér á landi eru konur á aldrinum frá 40 til 69 ára boðaðar til brjóstamyndatöku annað hvert ár en eldri konur eru einnig hvattar til að fara í skoðun.
● Erlendar rannsóknir benda til þess að með því að taka röntgenmyndir reglulega af brjóstum kvenna megi lækka dánartíðni vegna krabbameins í brjóstum verulega.

No comments: