12.10.08

Frábærir tónleikar

Fór í gær á tónleika í minningu Vilhjálms Vilhjálms og þeir voru frábærir - mikil stemming og fólk tók undir þegar sungið var "Fátt er svo með öllu illt að ei boði gott - það má finna út úr öllu ánægjuvott" og margir komu sl viku að en á mjög fínan hátt - þetta var mjög skemmtilegt.
Síðan lá leið í síðasta klukkutímann í 40 ára afmæli eins úr Matfíklahópnum- þar á meðal var einn samstúdent sem sæti á í skilanefnd eins af bönkunum og greyið var alveg að sofna þarna standandi ekki af því að fjörið hafi ekki verið nóg heldur var augljóst að svefninn hafi ekki verið mikill í langan tíma. Annars var áberandi hvað allir voru kátir og við fórum að rifja upp trabat og WV bjöllu tímabilið í MR sem var afar skemmtilegt ;0) og háskólaárin þegar enginn átti nýja flík og við lifðum á núðlum og naglasúpu haha og þegar því var lokið mat íbúðarlánasjóður til dæmis okkur D hæf til að kaupa íbúð upp á 3,2 millj og þetta er ekki langt síðan bara 12-13 ár !
HAHAHAHA þetta voru bara yndislegir dagar amk í minningunni þegar setið var og reiknað út hvernig við ætluðum að ná endum saman - man að einu sinni var það ekki séns og við skráðum okkur úr sambúð til að fá niðurgreiðslur og hærri barnabætur og allt það - já maður reddar sér en ekki hvað og allt gert ..........

No comments: