17.10.08

Föstudagur til fjár?

já eða þannig.... á amk ekki við þessa dagana
eiginlega fegin að það sé komin helgi þó að ég sé að vinna á morgun - starfsdagur hjá einni stofnunni hér sem við ætlum að sitja sem áheyrendur tvær úr deildinni - verður áhugavert.
Í vikunni þurfti ég að mæta í tvö foreldra viðtöl - þar kom ekkert mér svo sem á óvart - Unglingurinn til fyrirmyndar í alla staði: góðar einkunnir, 100% mæting, skilar alltaf sínu og fylgist með og fékk umsögn frá tveimur kennurum sem mér þótti mjög skemmtilegar "spyr skemmtilegra spurninga, sem sýnir áhuga og umhugsun um efnið" - hann sagði: mamma ekki segja neinum þá segja allir að ég sé nörd - neibb segi ekki orð og leyfi honum bara að vera í friði sem sitt hefur svo sannarlega unnið sér það inn. Hann keppti líka áðan í skólahlaupi UMSK og vann það - sko minn. Já stolt mamma í dag eins og reyndar alla daga.
Lillan fékk líka hrós, hlustar og fer eftir fyrirmælum, einbeitir sér vel en á það til að gleyma sér í ákafa - sko á ég loksins smá í henni - þar kom að því hehe, annars bara kátur og klár krakki.
Já ég kvarta ekki undan kreppu á meðan gullmolarnir skína svona - hvað annað skiptir máli en hraust, heilbrigð og hamingjusöm börn? Elskurnar mínar - þegar ég verð komin yfir móðuna miklu verður þetta dagbókin mín til krakkana og góð leið til að minna þau á að:
ÉG ER SVO STOLT AF YKKUR OG ÞIÐ ERUÐ ÞAÐ SEM GEFUR LÍFI MÍNU GILDI!
nóg í bili

1 comment:

Lóa Björk said...

Mikið er ég sammála þér - þau eru það sem skiptir öllu máli þegar upp er staðið. Því er svo gott þegar þau eru heilbrigð og ánægð!
Kv. Önnur stolt mamma :o)