9.10.08

Einn banki enn og ekkert lát er á ....

spurning hvort við hefðum ekki betur lagt inn á Gleðibankann!

Hvaða ávöxtun gefur best?

Ef þið hefðuð lagt 100.000 krónur í að kaupa hlutabréf Nortel fyrir einu ári síðan væri verðmæti bréfanna í dag um 4.900 krónur.
Hefði sama fjárfesting verið lögð í Enron væri sú eign í dag um 1.650 krónur.
Hefðuð þið keypt bréf í World Com fyrir 100.000 krónur væri minna en 500 kall eftir.
Hefði peningurinn hins vegar verið notaður til að kaupa Thule-bjór fyrir einu ári síðan þá hefði verið hægt að drekka hann allan og fara síðan með dósirnar í endurvinnslu og hafa um 21.400 krónur upp úr því.
Þegar ofan greint er athugað virðist vera vænlegur kostur fyrir fjárfesta að drekka stíft og endurvinna. Reyndar miðast þetta ekki við árið í ár þannig að þarna hefur eitthvað breyst og líklega er það bjórin sem hefur vinningin ennþá betur .

1 comment:

Inga Lara said...

Eg drakk slatta af Remy Martin a manudagskvoldid a medan ad eg las frettirnar fra Islandi.... otrulegt ad thad se bara 5 dagar sidan, finnst thad vera a life time!