31.10.08

Íslenska íslenska íslenska

Get ekki orða bundist
Smá um sérkenni okkar...krónuna .... nei alls ekki heldur tungumálið okkar
Sjálf er ég mikið fyrir að slangra og svona ;0) og enskan að mínu mati heimsmálið EN mér blöskrar svo oft vankunnátta fólks á íslenskri tungu og langar mig að nefna nokkur dæmi
HurðAR! OK ein hurð eins og ein ferð og svo förum við í margar ferðIR og þar af leiðandi eru margar hurðIR - hvaðan kemur þetta að tala um hurðar? áðan var Sveppi að auglýsa bíl í sjónvarpinu og hann sagði HURÐAR - annað svona DEILDAR - hve oft hef ég ekki að undanförnu heyrt talað um DEILDAR, sama atriðið það er ein deild og margar deildIR!
Sat fund um daginn þar sem deildarstjóri í skóla sagði: MÉR langar að þakka ykkur....bla bla .... við vinnum út frá því að börn hafi 10 GREINDAR og því hafa þau VÖL um verkefni ma kubba, PERL og kubba í leikskóladeild (hóst ... hóst .... athugasemd í þessum 10 valkostum var t.d. engin tónlist!!!! en hún er væntanlega ekki ein af 10 fyrrnefndum .....)
HAHA eflaust myndi amk einn sem ég þekki grenja úr hlátri að frétta að ÉG væri að tuða yfir vankunnáttu annarra í íslensku því í okkar sambúð sagði hann oft " dammm þú ert verri en Bibba á Brávallagötunni" hvar er hún annars ? Hvernig væri að vekja hana upp af svefni?

2 comments:

Lóa Björk said...

Þetta með íslenskuna já - er með dæmi í viðbót sem ég heyri oft - fólk sem talaði við hana Sigrúni, gott fólk, maður talar við SigrúnU :o)
kv. Lóa

Inga Lara said...

Ekki er nu Islenskan min uppa marga fiska eftir 14 ar i Englandi en eg gat meira ad segja sed villurnar i thessu.