Laugardagsmorgun, frábært veður og við í skátunum í Mosó fórum í göngu. Gengum frá Gljúfrasteini meðfram ánni og upp að Helgufossi. Rosalega vel heppnuð ferð og góð mæting. Næsta ferð verður 15.nóv og þá verður gengið á Mosfellið. Hvet alla sem áhuga hafa á góðri útiveru í frábærum hópi að koma með.
Annað á dagskránni hjá mér er að taka smá til (það er alltaf gefandi og hreinsar hugann) skreppa svo á tónleikana hans Vilhjálms með mömmu og enda svo í smá afmæli - enn einn úr vinahópnum að fylla fjóra tugi. Á morgun verður síðan fjölskyldumatur þar sem við söfnumst saman í Kópavoginum og borðum saman og að sjálfsögðu heimaslátrað lambalæri frá pabba ;0)
Fegin að þessi vika er búin vona að sú næsta verði betri.
more later............. Knús til ykkar allra
11.10.08
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Great work.
Good luck.
Flott hjá ykkur, ég hefði betur farið með ykkur heldur en liggja hér í timburmönnum heima.....
Post a Comment