7.10.08

tapað fé eða ...

Skoðum þetta aðeins. Þegar ég skildi fyrir 3 árum þá seldum við húsið og ég keypti íbúð sem þá var í byggingu - tveimur árum seinna eða 2007 var ljóst að mér hafði tekist að eyða ekki alveg öllum peningunum með því að t.d. kaupa plastparket í stað alvöru eins og ég hafði gert ráð fyrir í plani (og leggja það sjálf með aðstoð í stað þess að kaupa mann í verkið) Planið var vel upp sett og gert ráð fyrir alls kyns smáatriðum sem vænta má í nýrri íbúð - allt var ódýrara valið hjá mér en planið leyfði - ódýrari ljós - gardínur - you name it. Afganginn og við erum bara að tala um smáaura hér - engar milliur en smá varasjóð var mér ráðlagt að setja nú ekki á bók með engri ávöxtun - ég vildi heldur ekki gambla með þessa aura og var því ráðlagt að setja það í peningasjóðsbréf sem væru alltaf laus og góð ávöxtun. Í þessa aura hef ég getað sótt ef eitthvað óvænt hefur bjátað á og það vita þeir sem mig þekkja að ef ég ætla að gera eitthvað stærra eða fara eitthvað þá er ég búin að safna fyrir því og hef ekki notað þennan aur í neitt slíkt. Ég hugsaði nú í huast þegar allt fór að hækka að fínt að eiga þetta þar sem ferming væri á næsta leiti. En núna er búið að frysta þessa sjóði og líklega allt farið er mér sagt og mamma sem fékk einhvern 300 þús í arf eftir móður sína setti á peningabréf og það er líklega líka farið - en samt veit maður ekki - eina sem ég veit að það er ekki létt að vera sjálfstæð móðir á Íslandi í dag. Sjáum hvað morgundagurinn ber í skauti sér...

1 comment:

Inga Lara said...

uff ja thad er ekki audvelt ad lifa a Islandi i dag, hvorki sem sjalfstaed modir eda onnur modir