1.9.08

Sjálfstæðar mæður

Ég er ekki einstæð móðir - ég er sjálfstæð móðir svo mikið að einstæðri móður minni blöskrar stundum, en ég á mjög erfitt með að þiggja hjálp. Og það er fyrst og fremst sú ástæða að mér finnst ekkert þægilegt að aðrir séu ofan í mér eða mínu - humm já þrjósk en málið er að þegar einhver hefur verið að hjálpa mér þá verð ég bara pirruð sérstaklega ef einhver er of lengi hjá mér eða í mínum málum.
Núna er stefnan tekið á Kaupmannahöfn og það er nú ekki lítið púsluspil - koma 2 börnum fyrir - næturpössun - og sérþarfir - Unglingurinn á æfingum á hverjum degi, skátafundir, mikil heimavinna, lillan er líka á æfingum og svo þarf að vera með stundatöfluna hvenær er sund og hvenær er leikfimi og svo þarf að nesta liðið og það þarf að finna út föt fyrir hvern dag og hverja pössun því það koma 3 aðilar að þessari pössun - það er ekki eins og maður geti bara sest út í bíl og keyrt til keflavíkur - vonandi verð ég ekki svo púnteruð þegar ég kem út að ég nái ekki að njóta ferðarinnar - en hvað er maður annars að gera til Koben - jú fara í búðir og versla á börnin. HAHAHA ég get nú ekki annað en helgið að sjálfri mér - vona að ég finni mér amk einar buxur og fái eins og eitt - tvö hvítvínsglös og bblaðra og hlægja mikið með minni bestu vinkonu - þetta er í fyrsta sinn sem við förum út saman það verður gaman að prufa það ;) Hlakka til!

2 comments:

Lóa Björk said...

Sjálfstæð móðir er gott hugtak - einstæð móðir hefur fengið svona þreyttan stimpil.
Vona að þú njótir þess að vera í fríi í Kaupmannahöfn og slappir af dálítið. Það er alltaf erfitt að skilja krílin eftir, því það er jú bara mamman sem kann rútínuna og allt sem þeim fylgir, en þau eru í góðum höndum og þetta bjargast allt saman :o)
kv. Lóa

Inga Lara said...

Eg er sammala Lou, thetta er flott hugtak, sjalfstaed modir frekar en einstaed modir. Lysir morgum Islenskum konum mjog vel. Breskar konur er miklu frekar einstaedar en sjalfstaedar! Islenskar konur eru natturulega bestar